Atburður

Frá 24.03.2010 08:00 til 24.03.2010 09:00

„Auðveldara er að segja „fjall“ en klífa það“. Um stuðning í námi.

Opin hús fyrir foreldra í Mosfellsbæ

Foreldrum og öðrum áhugasömum um uppeldismál stendur til boða að mæta á opin hús á vegum Skólaskrifstofu Mosfellsbæjar síðasta miðvikudag í hverjum mánuði í vetur. Hvert kvöld hefst á stuttri fræðslu og spurningar og umræður verða að því loknu.

Foreldrar/forráðamenn og aðrir áhugasamir, takið þessi kvöld frá, komið og ræðið uppeldismál, umhverfi og aðstæður barna og unglinga í Mosfellsbæ.

Yfirskrift kvöldanna í vetur verður sem hér segir*:

28. okt. 2009 Við tökum þátt! Aðkoma foreldra að skólastarfi.
25. nóv. 2009 Máttur góðra tengsla. Hvað hefur heilinn um þau að segja?
27. jan. 2010 Mataræði og geðheilsa.
24. feb. 2010 Frá foreldri til foreldris - jákvæðni og umhyggja í samstarfi foreldra - skóli án eineltis.
24. mar. 2010 „Auðveldara er að segja „fjall“ en klífa það“. Um stuðning í námi.
28. apr. 2010 Að höndla hamingjuna: Líðan foreldra og áhrif hennar á börn.

Opnu húsin verða haldin í Listasal Mosfellsbæjar
í Kjarna kl. 20:00-21:00 nema annað sé auglýst sérstaklega.

Allir velkomnir
Skólaskrifstofa Mosfellsbæjar

* Auglýst með fyrirvara um breytingar.  Sjá auglýsingu hér (PDF 4 MB)