Hreindís Ylva Garðarsdóttir Holm ásamt hljómsveit verður með tónleika í Bæjarleikhúsinu í Mosfellsbæ að Þverholti, föstudagskvöldið 3. september kl. 21:00.
Húsið opnar kl: 20:00 og verður miðasala við inngang.
Verð 1,500 kr.-
Hreindís Ylfa Garðarsdóttir hefur ásamt hljómsveit verið á tónleikaferð um Norðurland og flutt lög til heiðurs skagfirsku dægurlagasöngkonunni
Erlu Þorsteinsdóttur en tónleikaröðina kallar hún
Stúlkan með Lævirkjaröddina.
Fyrstu tónleikarnir voru haldnir á Skagaströnd en eftir það lá leið á Græna hattinn á Akureyri og Mælifell á Sauðárkróki. Farið var svo suður yfir heiðar og lagið tekið á stóra sviðinu á Óðinstorgi á Menningarnótt í Reykjavík við góðar undirtektir og einnig á Bæjarhátíðinni Í túninu heima í Mosfellsbæ 28. ágúst.
Föstudaginn 3. september verða þau með tónleika í Bæjarleikhúsinu Mosfellsbæ og síðan á Café Rósenberg sunnudaginn 5. september og loks í Reykjadal í Mosfellsbæ en það eru styrktartónleikar og verða haldnir fimmtudaginn 9. september.
Flytjendur eru:
Hreindís Ylva Garðarsdóttir Holm söngur og þverflauta
Yngvi Rafn Garðarsson Holm gítarar
Tómas Jónsson hljómborð
Sigurður Ingi Einarsson trommur
Valgeir Einarsson bassi.
palli@feykir.is
Hægt er að heyra brot af prógamminu í stúdíói 12 í þættinum H&M á Rás 2 á föstudagsmorguninn kl. 11.00!
Hlökkum til að sjá sem flesta :)
Hreindís Ylva Garðarsdóttir Holm