Laugardaginn 28. janúar heldur Ásbjörg Jónsdóttir píanóleikari tónleika í Fella- og Hólakirkju. Tónleikarnir eru liður í Framhaldsprófi í píanóleik frá Listaskóla Mosfellsbæjar. Ásbjörg hefur stundað píanónám hjá Ólafi Elíassyni undanfarin ár, en er einnig í námi á jasspíanó og jasssöng við Listaskólann. Þá hóf Ásbjörg nám í tónsmíðum og upptökutækni í Listaháskóla Íslands s.l. haust. Tónleikarnir hefjast kl.14.00 og er aðgangur ókeypis. Sjá auglýsingu....