Álagning fasteignagjalda í Mosfellsbæ 2012
Álagning fasteignagjalda byggir á gildandi fasteignamati allra fasteigna eins og það er í janúar ár hvert. Álagning fasteignagjalda fer fram á vegum fjármáladeildar Mosfellsbæjar sem einnig hefur umsjón með leiðréttingum, reikningagerð og innheimtu. Bæjarstjórn Mosfellsbæjar samþykkti á 571. fundi að álagning fasteignagjalda 2012 verði:
Fasteignagjöld íbúðarhúsnæðis: A - skattflokkur
Íbúðarhús og sumarbústaðir, ásamt lóðum, erfðafestulönd og jarðeignir sem eingöngu eru nýttar til landbúnaðar, mannvirki og útihús á bújörðum.
| Fasteignaskattur A |
0,265% |
af fasteignamati húss og lóðar |
| Vatnsgjald |
0,110% |
af fasteignamati húss og lóðar |
| Holræsa- /Fráveitugjald |
0,130% |
af fasteignamati húss og lóðar |
| Lóðarleiga A |
0,340% |
af fasteignamati lóðar |
| Sorphirðugjald |
kr. 21.500 |
pr. íbúð skv. gjaldskrá fyrir sorphirðu |
Fasteignagjöld stofnana: B - skattflokkur
Sjúkra- og heilbrigðisstofnanir, skólar, íþróttahús o.fl. sbr. reglugerð nr. 1160/2005.
| Fasteignaskattur B |
1,320% |
af fasteignamati húss og lóðar |
| Vatnsgjald |
0,110% |
af fasteignamati húss og lóðar |
| Holræsa- /Fráveitugjald |
0,130% |
af fasteignamati húss og lóðar |
| Lóðarleiga B |
1,100% |
af fasteignamati lóðar |
Fasteignagjöld annars húsnæðis: C - skattflokkur
Aðrar fasteignir en falla undir A og B flokk t.d. verslanir, iðnaðar- og skrifstofuhúsnæði
| Fasteignaskattur C |
1,650% |
af fasteignamati húss og lóðar |
| Fasteignaskattur - hesthúsa |
0,450% |
af fasteignamati húss og lóðar |
| Vatnsgjald |
0,110% |
af fasteignamati húss og lóðar |
| Holræsa- /Fráveitugjald |
0,130% |
af fasteignamati húss og lóðar |
| Lóðarleiga C |
1,100% |
af fasteignamati lóða |
Yfirlit yfir gildandi gjaldskrár Mosfellsbæjar má finna á vefsíðunni www.mos.is
Birting álagningar, gjalddagar og greiðsla fasteignagjalda
Álagning er birt rafrænt á www.island.is og íbúagátt Mosfellsbæjar en jafnframt er hægt að óska eftir útprentuðum álagningarseðli í Þjónustuveri Mosfellsbæjar.Gjalddagar fasteignagjalda skiptast á níu gjalddaga frá 15. janúar til 15. september. Eindagi fasteignagjalda er þrjátíu dögum eftir gjalddaga og fellur allur skattur ársins í gjalddaga ef vanskil verða. Sé fjárhæð fasteignagjalda undir kr. 20.000 er gjalddagi þeirra 15. janúar.
Greiðslu má inna af hendi með útsendum greiðsluseðlum, í heimabanka, hjá bönkum og í Þjónustuveri Mosfellsbæjar. Jafnframt er hægt að greiða fasteignagjöldin með beingreiðslum eða boðgreiðslum. Greiðsluseðlar eru almennt ekki sendir nema þess hafi verið óskað sérstaklega á íbúagátt Mosfellsbæjar eða í Þjónustuveri.
Afsláttur til tekjulágra elli- og örorkulífeyrisþega af fasteignaskatti og fráveitugjaldi
Lækkunin er reiknuð sjálfkrafa í samvinnu við Þjóðskrá Íslands og Ríkisskattstjóra. Til bráðabirgða verður lækkunin reiknuð út frá síðasta skattframtali og færð til lækkunar á fasteignagjöldum á álagningarseðli. Í haust þegar staðfest skattframtal liggur fyrir vegna tekna ársins 2011 verður afsláttur endurskoðaður og tilkynnt ef breyting verður. Nánari reglur og eyðublað fyrir athugasemdir má finna á vef Mosfellsbæjar www.mos.is.
Tekjumörk elli- og örorkulífeyrisþega eru sem hér segir:
| Tekjur einstaklinga 2011 |
|
Tekjur hjóna 2011 |
| Afsláttur |
Frá |
Til |
|
Afsláttur |
Frá |
Til |
| 100% |
0 |
2.331.999
|
|
100% |
0 |
3.264.999 |
| 80% |
2.332.000 |
2.565.999 |
|
80% |
3.265.000 |
3.591.999 |
| 60% |
2.566.000 |
2.796.999 |
|
60% |
3.592.000 |
3.914.999 |
| 40% |
2.797.000 |
3.019.999 |
|
40% |
3.915.000 |
4.227.999 |
| 20% |
3.020.000 |
3.231.999 |
|
20% |
4.228.000 |
4.523.999 |
Nánari upplýsingar fást hjá Mosfellsbæ í síma 525-6700 eða á netfanginu mos@mos.is
Frekari upplýsingar um álagningu og greiðslu fasteinagjalda má finna hér.