Dagvistunarkostnaður barna

Samþykkt á 873. fundi bæjarráðs Mosfellsbæjar þann 19. mars 2008

Samþykkt

um niðurgreiðslur á vistunarkostnaði barna í

leikskólum og hjá sjálfstætt starfandi dagforeldrum


Skilgreiningar

Niðurgreiðslur á vistunarkostnaði eru háðar því að foreldrar eða forráðamenn barnsins eigi lögheimili í Mosfellsbæ og einungis er niðurgreitt í ellefu mánuði hvers almanaksár, þ.e. áskilið er að börn taki sumarleyfi a.m.k. einn mánuð á tímabilinu maí til ágúst ár hvert.

Samkvæmt samþykkt þessari eiga tveir hópar foreldra eða forráðamanna rétt á því að sækja um niðurgreiðslur á vistunarkostnaði barna sinna, hvort heldur þær niðurgreiðslur renna til leikskóla bæjarins, leikskóla sem reknir eru af öðrum aðilum eða til foreldra sem vista börn sín hjá sjálfstætt starfandi dagforeldrum fyrir utan tímabilið sem barn er 1 árs og fram að leikskólagöngu þess eða í síðasta lagi 31. júlí árið sem barnið verður 2ja ára.

Hópur 1, niðurgreiðslur til forgangshópa

Foreldrar eða forráðamenn barna í forgangshópi þ.e. börn einstæðra foreldra, börn þar sem báðir foreldrar stunda fullt nám, foreldrar barna sem verða 2ja ára á árinu, hafi þeim ekki boðist pláss fyrir barn sitt á einhverjum leikskóla bæjarins eftir 1. september ár hvert, börn starfsfólks leikskóla Mosfellsbæjar og börn dagforeldra í Mosfellsbæ sem starfa allan daginn (8-9 tíma vistun)

Hópur 2, niðurgreiðslur til annarra

Foreldrar eða forráðamenn barna sem ekki falla undir hóp 1,forgangshóp.

Námskal stundað á skyldunámsstigi, framhaldsskólastigi og eða annað fullt nám sem lánshæft er hjá Lánasjóði íslenskra námsmanna.

Vistunartímabil er almanaksmánuður eða brot úr honum.

1. gr.

Hóparnir sem rétt eiga á niðurgreiddum vistunarkostnaði barna sinna eru því:

1)      hópur 1, foreldrar eða forráðamenn barna í forgangshópi.

2)      hópur 2, foreldrar eða forráðamenn annarra barna.

Foreldrar eða forráðamenn eru því móttakendur niðurgreiðslu vistunarkostnaðar fyrir hönd þeirra barna sem sótt er um niðurgreiðslu vegna.

Upphæðir niðurgreiðslan skv. samþykkt þessari skulu settar í sérstökum gjaldskrám.

Um vistunarreglur vísast að öðru leyti til reglna um úthlutun leikskólaplássa, reglugerðar um dagforeldra og reglna Mosfellsbæjar um daggæslu barna í heimahúsi. Vistun barna hjá dagforeldrum er alfarið á ábyrgð viðkomandi dagforeldri og foreldris eða forráðamanns barns og samkvæmt þeim reglum sem að ofan er getið.

2. gr.

Sækja skal um niðurgreiðslu á vistunarkostnaði til Mosfellsbæjar á þar til gerðum eyðublöðum og skulu umbeðin gögn fylgja umsókn áður en hún er tekin til efnislegrar afgreiðslu. Niðurgreiðslurnar taka þá gildi næsta mánuð eftir að umsókn er afgreidd.

3. gr.

Niðurgreiðslur fara þannig fram:

1)      Til foreldra og forráðamanna barna í leikskólum Mosfellsbæjar er niðurgreiðsla dregin frá vistunargjaldi skv. gjaldskrá hverju sinni um leið og reikningur er gefin út fyrir vistuninni, en reikningar eru gefnir út í upphafi vistunartímabils hverju sinni.

2)      Til foreldra og forráðamanna barna í öðrum leikskólum er niðurgreiðslan greidd mánaðarlega til rekstraraðila eftir að reikningar berast sem eru staðfestir af foreldrum og forráðamönnum.

3)      Til foreldra og forráðamanna barna hjá dagforeldrum er niðurgreiðslan lögð inn á bankareikning foreldra í síðasta lagi 10. hvers mánaðar, eftir að staðfest yfirlit dagforeldris á að viðkomandi barn sé í vistun hjá dagforeldrinu, hefur borist eftirlitsaðila. Staðfest yfirlit frá dagforeldri skulu berast fyrir 5. hvers mánaðar vegna líðandi mánaðar.

Það er markmið Mosfellsbæjar að greiða styrkinn eigi síðar er 10. dag mánaðar. Staðfest yfirlit sem berast eftir 5. hvers mánaðar verða greidda með næsta tímabili þar á eftir.

4. gr.

Við gildistöku þessarar samþykktar er fyrri samþykkt um sama efni frá 431. fundi bæjarstjórnar Mosfellsbæjar þann 30. nóvember. 2005 felld úr gildi.