Hundagjöld, afsláttur af gjöldum
Reglur
um afslátt af skráningar- og eftirlitsgjaldi með hundi, sbr. 2. mgr. 7. gr. gjaldskrár fyrir hundahald í Mosfellsbæ.
1. gr.
Hafi skráður eigandi hunds lokið
grunnnámskeiði í hundaupppeldi, sem viðurkennt er af
Heilbrigðiseftirliti Kjósarsvæðis, á hann rétt á 50% afslætti af
eftirlitsgjaldi, sbr. 3. gr. gjaldskrár fyrir hundahald í Mosfellsbæ, í
samræmi við neðangreindar reglur.
Hafi skráður eigandi hunds í 10 ár í hvívetna
fullnægt ákvæðum samkvæmt samþykkt um hundahald í Mosfellsbæ á hann
rétt á 50 % afslætti af eftirlitsgjaldi sbr. 3. gr. gjaldskrár fyrir
hundahald í Mosfellsbæ, í samræmi við neðangreindar reglur.
Hafi skráður eigandi hunds í 10 ár í hvívetna
fullnægt ákvæðum samkvæmt samþykkt um hundahald í Mosfellsbæ á hann
rétt á 50 % afslætti af skráningargjaldi nýs hunds sbr. 2.gr.
gjaldskrár fyrir hundahald í Mosfellsbæ.
2. gr.
Skilyrði fyrir afslætti skv. 1. gr. eru eftirfarandi:
1. Gjöld til bæjarins af hundinum séu ekki í vanskilum.
2. Ormahreinsunarvottorð vegna hundsins hafi verið afhent í samræmi við reglur.
3. Umsækjandi hafi að öðru leyti ekki orðið uppvís að því að brjóta samþykkt um hundahald í Mosfellsbæ.
3. gr.
Sækja skal um afslátt vegna eftirlitsgjalda
með gjalddaga 1. október, ekki síðar en fyrir eindaga þeirra, sem er 1.
desember sama ár. Afsláttur er ekki veittur fyrir liðið gjaldatímabil.
Ekki er nauðsynlegt að endurnýja umsókn árlega en Mosfellsbær getur
afturkallað afslátt ef leyfishafi fullnægir ekki skilyrðum 2. gr.
Hafi
afsláttur verið felldur niður, getur skráður eigandi hunds, sótt um
afslátt að nýju að þremur árum liðnum hafi hann fullnægt skilyrðum 2.
gr. allan þann tíma.
4. gr.
Umsókn um afslátt af gjöldum skal afhent
afgreiðslu Mosfellsbæjar. Umsókn skal fylgja staðfesting á þátttöku í
viðurkenndu námskeiði sem útgefin er af námskeiðshaldara.
Ofangreindar reglur voru samþykktar á 287. fundi bæjarstjórnar Mosfellsbæjar, 13.10.1999.
2. og 3. mgr. 1. gr. voru samþykktar á 392. fundi bæjarstjórnar Mosfellsbæjar þann 17. mars 2004.