Reglur Mosfellsbæjar
um úthlutun leiguíbúða.
I. KAFLI
Almenn ákvæði.
1. gr.
Markmið með úthlutun leiguíbúða er að sjá til þess að veita þeim fjölskyldum og einstaklingum, sem ekki eru færir um það sjálfir, úrlausn í húsnæðismálum til að leysa úr bráðum vanda á meðan unnið er að varanlegri lausn, sbr. 46. gr. laga nr. 40/1991 um félagsþjónustu sveitarfélaga .
II. KAFLI
Réttur til leiguhúsnæðis.
2. gr.
Almenn skilyrði.
Umsækjandi skal hafa skráð lögheimili í Mosfellsbæ og hafa verið skráður þar síðastliðna 12 mánuði, þegar umsókn er tekin til afgreiðslu fjölskyldunefndar.
Umsækjandi skal vera í skilum við Mosfellsbæ, stofnanir bæjarfélagsins eða fyrirtæki.
Umsækjandi skal vera innan tekju- og eignamarka samkvæmt reglugerð um lánveitingar til leiguíbúða, ráðstöfun þeirra og rekstur nr. 873/2001.
3. gr.
Tekjur.
Miðað skal við tekjur síðasta árs samkvæmt staðfestu skattframtali og til hliðsjónar tekjur síðastliðinna þriggja mánaða. Með tekjum er átt við heildartekjur einstaklings, hjóna eða sambúðarfólks og barna 18 ára og eldri sem búa á heimilinu, þó ekki barna húsráðenda sem eru á aldrinum 18-20 ára ef þau stunda fullt nám í framhaldsskóla, enda sé námið staðfest af skóla.
Starfsmaður skal, ef þörf krefur afla frekari upplýsinga um tekjur og eignir umsækjanda svo sem hjá skattayfirvöldum, atvinnurekendum, Tryggingastofnun ríkisins, lífeyrissjóðum og atvinnuleysistryggingasjóði.
4. gr.
Eignir.
Umsækjandi, maki hans eða sambýlisaðili sem eiga eignir umfram eignir sem kveðið er á um í reglugerð um eignamörk skv. reglugerð nr. 873/2001 eiga ekki rétt á úthlutun félagslegra leiguíbúða.
III. KAFLI
Umsókn um félagslega leiguíbúð.
5. gr.
Umsókn og fylgigögn.
Fjölskyldusvið fer með afgreiðslu umsókna um leiguhúsnæði í umboði fjölskyldunefndar. Til að umsókn sé tekin til afgreiðslu þarf að fylgja:
1. Staðfest afrit af síðasta skattframtali og álagningaseðli umsækjanda og fjölskyldu hans
2. Vottorð um lögheimili og fjölskyldustærð.
3. Eftirtalin gögn eftir því sem við á sbr. umsóknareyðublað:
• Vottorð frá heilbrigðisfulltrúa ef umsækjandi býr í heilsuspillandi húsnæði.
• Læknisvottorð, ef alvarleg veikindi eru í fjölskyldunni.
• Vottorð um örorku.
• Vottorð um þungun.
• Gögn um lögskilnað, skilnað að borði og sæng eða sambúðarslit.
• Staðfesting skóla um fullt nám barna umsækjanda 18 – 20 ára.
Umsókn fellur úr gildi ef umbeðin gögn berast ekki innan tveggja mánaða frá móttöku umsóknar. Í tilvikum þar sem umsækjanda er úthlutað íbúð sem hann þiggur ekki án haldbærra raka, fellur umsókn hans úr gildi.
6. gr.
Tilkynning um afgreiðslu og málskot.
Umsókn skal tekin fyrir á trúnaðarmálafundi fjölskyldudeildar og niðurstaða tilkynnt umsækjanda skriflega og útskýrð. Ef umsókn er samþykkt fer umsækjandi á biðlista eftir leiguíbúð. Ef niðurstaða er óhagstæð umsækjanda skal hún rökstudd skriflega og umsækjandi upplýstur um rétt til málskots og málskotsfrest.
IV. KAFLI
Framkvæmd við úthlutun.
7. gr.
Fjölskyldugerð.
Við mat á fjölskyldugerð fá hjón eða sambýlisfólk eitt stig fyrir hvert barn og einstæðir foreldrar fá tvö stig fyrir eitt barn og síðan eitt stig fyrir hvert barn umfram það. Barn er sá sem er á aldrinum 0 -18 ára. Til barna reiknast einnig barn umsækjanda sem er á aldrinum 18 - 20 ára ef það er í fullu námi framhaldsskóla, enda sé námið staðfest af skóla.
8. gr.
Heilsufar og vinnugeta.
Við mat á vinnugetu skal gengið út frá því að einstaklingur sem hefur fulla starfsgetu fái ekkert stig. Eitt stig skal gefið ef umsækjandi er með skerta vinnugetu og skal þá miðað við allt að 75% örorku eða læknisvottorð sem staðfestir að umsækjandi hafi skerta starfsgetu vegna sjúkdóms. Tvö stig skulu gefin ef umsækjandi er óvinnufær samkvæmt örorkumati metinn til 75% örorku eða nýtur endurhæfingarlífeyris. Ef vinnugeta er skert vegna aldurs þ.e. umsækjandi er 67 ára og eldri, er gefið eitt stig.
9. gr.
Húsnæðisaðstæður.
Ef umsækjandi er húsnæðislaus, er á gistiheimili eða gestur hjá annarri fjölskyldu eru gefin þrjú stig. Ef umsækjandi býr í heilsuspillandi húsnæði, hefur verið sagt upp eða misst húsnæði, eða á að rýma innan mánaðar eru gefin tvö stig. Ef umsækjandi býr í of þröngu húsnæði er gefið eitt stig, samkvæmt rökstuddu mati starfsmanns fjölskyldusviðs.
Til að barn geti talist gestur á heimili foreldra þurfi viðkomandi að hafa búið sjálfstætt og flutt aftur til foreldra vegna erfiðleika.
10. gr.
Tekjur
Fyrir tekjur sem eru á bilinu 0-50% yfir kvarða fjárhagsaðstoðar skal gefa þrjú stig. Fyrir tekjur á bilinu 50-75% yfir kvarða fjárhagsaðstoðar skal gefa tvö stig. Ekkert stig er gefið fyrir tekjur sem eru 100% yfir kvarðamörkum og þar yfir.
V. KAFLI
Húsaleigusamningur.
11. gr.
Samningur og áætlun.
Húsaleigusamningur er almennt til tólf mánaða. Húsreglur eru afhentar við undirskrift leigusamnings.
Í tilvikum þar sem leigjandi á við fjárhagsvanda að etja og skuldastaða er slæm, skal viðkomandi gera skriflega áætlun um fjárhagslega stöðu, með það að markmiði að vinna að varanlegri lausn vandans sbr. 1. gr. reglnanna. Það skal gert með því að greiða niður skuldir og leggja fyrir.
Í tilvikum þar sem ekki er um að ræða fjárhagsvanda eða skuldabyrði, skal viðkomandi gera skriflega áætlun um hvernig hann hyggst vinna að varanlegri lausn húsnæðismála sbr. 1. gr. reglnanna.
Áætlunin endurskoðist við endurnýjun húsaleigusamnings.
Áður en leigutíma lýkur eru aðstæður leigjanda metnar af starfsmanni fjölskyldusviðs með tilliti til framkvæmd áætlana. sbr. 2. og 3. mgr. greinarinnar.
Endurnýjun á húsaleigusamningi er lögð fyrir trúnaðarmálafundi fjölskyldudeildar og niðurstaða tilkynnt leigjanda skriflega.
12. gr.
Tryggingagjald.
Við úthlutun íbúðar skal greiða tryggingagjald sem nemur tveggja mánaða leigu. Tryggingagjaldið er ætlað til að mæta kostnaði á endurbótum umfram eðlilegt slit samkvæmt úttekt húsnæðisfulltrúa Mosfellsbæjar.
13. gr.
Riftun samnings.
Leigusali hefur rétt á að rifta húsaleiguleigusamningi greiði leigjandi ekki leiguna og framlag til sameiginlegs kostnaðar. Leigusali skal senda greiðsluáskorun með viðvörun um riftun á samningi mánuði frá gjalddaga.
Hafi leigjandi ekki brugðist við greiðsluáskorun getur leigusali rift leigusamningi viku síðar og höfðað útburðarmál samkvæmt ákvörðun fjölskyldunefndar.
Heimilt er að senda húsaleigu sem er í vanskilum í lögfræðiinnheimtu. Kostnaður vegna þessara aðgerða fellur á leigjanda, sbr. 61. gr. húsaleigulaga nr. 36/1994.
Samþykkt í FJÖLSKYLDUNEFND MOSFELLSBÆJAR 23. nóvember 2010.
Samþykkt í BÆJARSTJÓRN MOSFELLSBÆJAR 1. desember 2010.