Reglugerð fyrir
Lista- og menningarsjóð Mosfellsbæjar
1. gr.
Sjóðurinn heitir Lista- og menningarsjóður
Mosfellsbæjar og er eign Mosfellsbæjar. Hann tekur við hlutverki
Listaverkasjóðs Mosfellsbæjar, sem stofnaður var þann 9. ágúst 1987 á
fyrsta fundi bæjarstjórnar eftir að Mosfellshreppur hlaut
kaupstaðarréttindi. Listaverk og fjármunir Listaverkasjóðs
Mosfellsbæjar renna til Lista- og menningarsjóðs Mosfellsbæjar.
2. gr.
Menningarmálanefnd Mosfellbæjar hefur með höndum daglega stjórn sjóðsins í umboði bæjarstjórnar.
3. gr.
Markmið sjóðsins er:
- að bæjarfélagið eignist gott safn listaverka, sem
endurspegli listsköpun í landinu og sem aðgengilegt verði íbúum
bæjarfélagsins til skoðunar.
- að efla hverskonar menningarstarfsemi, list og listiðnað í bæjarfélaginu.
- að veita styrki til sérstakra verkefna á sviði menningarmála.
4. gr.
Árlegar tekjur sjóðsins eru að jafnaði 0,5%
af útsvarstekjum Mosfellsbæjar og gjafir sem sjóðnum kynnu að berast.
Bæjarstjórn getur þó samþykkt annað fyrir lok febrúar ár hvert.
5. gr.
Tillaga um hvernig fé sjóðsins skuli varið,
sbr. 4. gr. skal Menningarmálanefnd Mosfellsbæjar taka á fundum sínum
og skulu minnst fjórir nefndarmenn mættir á slíkum fundum. Einfaldur
meirihluti nefndarmanna ræður úrslitum varðandi afgreiðslu mála.
6. gr.
Stjórn sjóðsins skal, í byrjun hvers árs,
leggja fyrir bæjarstjórn til samþykktar, skýrslu um áætlun sjóðsins.
Allar gerðir sjóðsstjórnar þarf að leggja fyrir bæjarstjórn til
samþykktar hverju sinni.
7. gr.
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar skal annast
fjárreiður sjóðsins og reikningshald. Reikningar sjóðsins skulu
endurskoðaðir af skoðunarmönnum ársreikninga Mosfellsbæjar og skulu
þeir prentast ásamt reikningum bæjarsjóðs.
8. gr.
Forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
skal halda skrá yfir listaverkaeign sjóðsins og ljósmyndir, höfunda,
hvenær unnið, hvenær keypt eða fengið að gjöf og tilefni ef eitthvað
er, kauðverð og hvar varðveitt.
9. gr.
Reglugerð þessi, er samþykkt af bæjarstjórn
Mosfellsbæjar hinn 18.08. 1994 og jafnframt fellur úr gildi reglugerð
Listaverkasjóðs Mosfellsbæjar frá 20.03. 1991.