Lögmannskostnaður í barnaverndarmálum
Reglur Mosfellsbæjar
um greiðslu lögmannskostnaðar í barnaverndarmálum
1.gr.
Fjölskyldunefnd Mosfellsbæjar veitir aðstoð til greiðslu
lögmannsaðstoðar fyrir börn, foreldra eða aðra forsjáraðila barna þegar
fyrir liggur einhliða áætlun um beitingu þvingunarúrræða eða áður en
barnaverndarnefnd kveður upp úrskurð, svo og í tengslum við rekstur
máls fyrir kærunefnd barnaverndarmála, sbr 47. gr. og 55. gr.
barnaverndarlaga nr. 80/2002 og 28. gr. reglugerðar nr. 56/2004 um
málsmeðferð fyrir barnaverndarnefnd. Leggja skal fram skriflega umsókn
um framangreinda aðstoð. Þegar umsókn er metin skal höfð hliðsjón af
fjárhag umsækjanda auk eðlis og umfang máls.
2.gr.
Aðstoð til greiðslu lögmannskostnaðar er háð því að löglærður
aðstoðarmaður hafi réttindi til málflutnings fyrir héraðsdómi eða
hæstarétti, sbr. 9. og 14.gr. lagna um málflytjendur nr. 61/1994.
3.gr.
Foreldrar eða aðrir forsjármenn barna eða ungmenna velja sér sjálfir
lögmann. Lögmaður skal hafa samband við yfirmann fjölskyldudeildar eða
félagsmálastjóra. Gera skal samning um vinnslu málsins þar sem fram
kemur hvert hlutverk lögmanns sé í málinu. Þá skal lögmaður gera grein
fyrir tímagjaldi sínu. Ef barnaverndarnefnd skipar barni talsmann sbr.
46. gr. barnaverndarlaga nr 80/2002 gilda sömu reglur.
4. gr.
Hámarksupphæð sem greidd er fyrir lögmannskostnað skv. reglum þessum
er 80.000.- án virðisaukaskatts. Til viðbótar getur komið kostnaður
vegna málskots til kærunefndar barnaverndarmála allt að 50.000.- án
virðisaukaskatts. Komi upp tilvik þar sem ljóst þykir að vinnsla máls
verði sérstaklega umfangsmikil skal samið um það sérstaklega. Lögmaður
skal skila tímaskýrslu um leið og hann leggur fram reikning.
5.gr.
Framkvæmdastjóri fjölskyldusviðs staðfestir reikninga vegna
lögmannskostnaðar. Hafi verið samið um hærri greiðslur en reglur þessar
segja fyrir um skal vísa máli til fjölskyldunefndar til staðfestingar.
6.gr.
Reglur þessar skulu kynntar forsjáraðilum barns ef mál þeirra sæta
meðferðar barnaverndarnefndar og þeim lögmönnum sem taka að sér að
aðstoða þá.
Reglur þessar öðlast gildi við staðfestingu fjölskyldunefndar Mosfellsbæjar.
Samþykkt í FJÖLSKYLDUNEFND MOSFELLSBÆJAR 8. desember 2008.
Samþykkt í BÆJARSTJÓRN MOSFELLSBÆJAR 17. desember 2008.