Skipulags- og byggingarnefnd
Samþykkt fyrir Skipulags- og byggingarnefnd Mosfellsbæjar.
1.gr.
Skipulags- og byggingarnefnd (hér eftir nefnd nefndin) fer með skipulags- og byggingarmál eftir því sem nánar er kveðið á um í lögum og reglugerðum og í samþykkt þessari.
2.gr.
Nefndin er skipuð fimm fulltrúum og fimm til vara, kosnum af bæjarstjórn. Bæjarstjórn kýs formann og varaformann. Kjörtímabil hennar er það sama og bæjarstjórnar. Nefndin skal halda gerðabók og skulu fundargerðir hennar sendar bæjarstjórn til staðfestingar. Fulltrúar í nefndinni skulu gæta þagmælsku um einkamálefni fólks sem fjallað er um á fundum nefndarinnar. Fulltrúi skal víkja af fundi, og kalla til varamann, tengist hann einstaklingum eða málum sem fjallað er um í nefndinni, þannig að spillt geti óhlutdrægni hans og valdið tortryggni.
3.gr.
Hlutverk nefndarinnar er:
-að gera tillögur til bæjarstjórnar um stefnu í skipulags- og byggingarmálum og hafa eftirlit með að stefna bæjaryfirvalda á hverjum tíma sé haldin.
-að hafa forræði í skipulags- og byggingarmálum í bæjarfélaginu í samræmi við gildandi lög og reglugerðir í skipulags- og byggingarmálum.
-að leggja mat á þá þjónustu sem veitt er á vegum sveitarfélagsins í skipulags- og byggingarmálum með tölulegum upplýsingum og könnunum á meðal bæjarbúa. Einnig að fjalla um þær kvartanir sem berast vegna þjónustunnar.
-að fara yfir tillögur forstöðumanna að fjárhagsáætlun hvers árs hvað varðar þá liði sem falla undir verksvið nefndarinnar og gæta þess í ákvörðunum sínum að halda áætlanir þegar að framkvæmdum kemur.
-að vera bæjarstjórn til ráðuneytis í skipulags- og byggingarmálum.
4. gr.
Verkefni nefndarinnar eru:
-að fara með verkefni samkvæmt skipulags- og byggingarlögum og skipulags- og byggingarreglugerðum og fylgjast með að ákvæði þeirra séu haldin.
-að hafa umsjón með samkeppnum um skipulag, skipun dómnefnda og úrvinnslu á tillögum.
-að fara með verkefni umferðarnefndar samkvæmt umferðarlögum.
-að gera tillögur til bæjarstjórnar um skipulag almenningssamgangna í Mosfellsbæ, m.a. akstursleiðir og staðsetningu biðskýla.
-að hafa umsjón með mælingum og kortagerð.
-að vinna að öðrum þeim verkefnum sem bæjarstjórn felur nefndinni á hverjum tíma.
5. gr.
Forstöðumaður Tækni- og umhverfissviðs og byggingarfylltrúi sitja fundi nefndarinnar með málfrelsi og tillögurétt. Þeir eru nefndinni ráðgefandi og sjá um ritun fundargerða, nema nefndin ákveði annað. Forstöðumaður Tækni- og umhverfissviðs, og byggingarfulltrúi sem staðgengill hans í forföllum, undirbýr fundi í samráði við formann og framkvæmir ákvarðanir nefndarinnar eftir að bæjarstjórn hefur staðfest þær.
Um starfsmannamál fer eftir starfsmannastefnu Mosfellsbæjar.
6. gr.
Séu ákvæði í lögum eða samstarfssamningum um seturétt aðila utan nefndarinnar, þegar um mál þeim tengd er fjallað, skal þess gætt að þau ákvæði séu uppfyllt.
Nefndin skal gæta ákvæða stjórnsýslulaga við meðferð mála.
Sett með heimild í 54. og 55. gr. samþ. um stjórn Mosfellsbæjar og fundarsköp bæjarstjórnar nr. 428/2000
Samþykkt á 374. fundi bæjarstjórnar Mosfellsbæjar þann 21.05.2003