Samþykkt um sorphirðu og hreinsun opinna svæða í Mosfellsbæ.
1. gr.
Mosfellsbær
annast sorphirðu (sorpeyðingu og sorphreinsun almenns húsasorps) og
hreinsun opinna svæða í Mosfellsbæ samkvæmt ákvæðum þessarar
samþykktar. Sorphirða fer fram undir stjórn tækni- og umhverfissviðs
Mosfellsbæjar og eftirliti Heilbrigðiseftirlits Kjósarsvæðis.
2. gr.
Verktakar sem annast sorphreinsun samkvæmt samningi við Mosfellsbæ skulu hafa starfsleyfi heilbrigðisnefndar.
3. gr.
Sérhverjum húsráðanda í Mosfellsbæ er
skylt að nota þær aðferðir og ílát við sorpgeymslu og -hreinsun sem
bæjarstjórn, í samráði við heilbrigðisnefnd, ákveður.
4. gr.
Sorpgeymslur skulu vera aðgengilegar fyrir
sorphirðumenn og standa sem næst aðkomu að lóð. fiær skulu staðsettar
saman ef um fjölbýlishús er að ræða. Húsráðendur skulu halda tunnum
hreinum og hreinsa snjó frá sorpgeymslum á vetrum og halda greiðfærri
leið að þeim, svo unnt sé að annast hreinsun.
5. gr.
Mosfellsbær leggur íbúðum til sorpílát þegar breytingar eru gerðar á fyrirkomulagi sorphirðu, sbr. 3 gr. samþykktar þessarar.
Í
sorpílátin má aðeins setja neysluúrgang, þ.e. venjulegt heimilissorp, í
samræmi við nánari fyrirmæli sem kunna að verða sett um flokkun
úrgangs, sbr 3. gr. Ekki má setja í sorpílát mold, grjót,
byggingarefni, garðaúrgang o.þ.h. Spilliefni, lyf og annar hættulegur
úrgangur má ekki fara í sorpílát. Glerbrotum og öðrum oddhvössum
hlutum, sem hætta er á að skaði þá sem meðhöndla úrgang eða sorpílát,
skal pakkað inn eða gengið frá þeim á annan tryggilegan hátt. Gæta
skal þess að fylla ekki sorpílátin meira en svo að auðveldlega megi
loka þeim.
6. gr.
Bæjarstjórn ákveður í samráði við heilbrigðisnefnd hversu oft sorphreinsun fer fram á vegum bæjarins.
7. gr.
Spilliefnum, hættulegum úrgangi og öllum
öðrum úrgangi en heimilissorpi skal skila á endurvinnslu- eða
söfnunarstöð, sem hefur starfsleyfi heilbrigðisnefndar. Jarðvegsefnum
skal komið fyrir á sérstökum losunarstað fyrir jarðvegsefni samkvæmt
ákvörðun bæjarstjórnar á hverjum tíma.
8. gr.
Fyrirtæki og stofnanir geta samið við þar
til bæran aðila um að annast sorphirðu á þeirra vegum, enda greiði þau
ekki sorphirðugjöld til sveitarfélagsins.
Mosfellsbær getur tekið
að sér að annast sorphirðu fyrir fyrirtæki og stofnanir gegn greiðslu
samkvæmt gjaldskrá sbr. 1. mgr. 9. gr. samþykktar þessarar. 886/2000
Frágangur
og umgengni um sorpílát, svo og flutningur á úrgangi frá fyrirtækjum og
stofnunum, skal vera í samræmi við fyrirmæli heilbrigðisnefndar.
9. gr.
Bæjarstjórn er heimilt að setja
gjaldskrá, að fenginni umsögn heilbrigðisnefndar, til að standa undir
kostnaði við sorphirðu samkvæmt samþykkt þessari. Gjöld mega aldrei
vera hærri en sem nemur kostnaði við veitta þjónustu og framkvæmd
eftirlits með einstökum þáttum. Sveitarfélagið skal láta birta
gjaldskrána í B-deild stjórnartíðinda. Vísa skal til samþykktar
þessarar í gjaldskránni. 886/2000
10. gr.
Kvartanir vegna sorphirðu á vegum
Mosfellsbæjar skal bera upp við starfsmenn áhaldahúss bæjarins. Telji
viðkomandi sig ekki fá fullnægjandi úrlausn hjá bæjaryfirvöldum getur
hann skotið málinu til heilbrigðisnefndar Kjósarsvæðis.
11. gr.
Brjóti húsráðandi ákvæði samþykktar
þessarar um meðferð eða geymslu úrgangs skulu sorphirðumenn tilkynna
það heilbrigðiseftirliti.
12. gr.
Ekki má henda rusli, garðaúrgangi eða
sorpi á opin svæði, götur, gangstíga eða fjörur innan bæjarmarkanna,
eða skilja númerslausa bíla og aðrar vélar eða tæki eftir á þessum
stöðum.
Starfsmenn áhaldahúss Mosfellsbæjar hafa, í umboði
heilbrigðisnefndar, eftirlit með því að hlutir séu ekki geymdir þannig
að í bága fari við heilbrigðis- og mengunarvarnareglugerð. Þetta á
t.d. við um númerslausar bifreiðar og bílflök, kerrur, báta, tæki og
vinnuvélar. Í umboði heilbrigðisnefndar er þeim heimilt að fjarlægja
slíka hluti að undangenginni viðvörun sem límd hefur verið á tækið.
Viðvörunin skal auðkennd heilbrigðisnefnd.
Ákvörðun þar að lútandi er heimilt að skjóta til heilbrigðisnefndar.
13. gr.
Með brot á samþykkt þessari skal farið samkvæmt ákvæðum laga um hollustuhætti og mengunarvarnir nr. 7/1998.
14. gr.
Samþykkt þessi, sem er samin af
heilbrigðisnefnd Kjósarsvæðis og samþykkt af bæjarstjórn Mosfellsbæjar,
staðfestist hér samkvæmt 25. gr. laga nr. 7/1998 um hollustuhætti og
mengunarvarnir og tekur gildi þegar við birtingu.
Umhverfisráðuneytinu, 2. október 1998.
F. h. r.
Ingimar Sigurðsson.
-----------------------------------
Sigurbjörg Sæmundsdóttir