Lesa frétt

4.3.2010

Upplýsingar um þjóðaratkvæðagreiðslu

LágafellskóliKjörstaður vegna Þjóðaratkvæðagreiðslu sem fram fer þann 6. mars 2010 er í Lágafellsskóla við Lækjarhlíð og stendur kjörfundur frá kl. 09-22. Aðsetur yfirkjörstjórnar á kjördag þann 6. mars 2010 verður á sama stað. Í yfirkjörstjórn Mosfellsbæjar eiga sæti: Þorbjörg Inga Jónsdóttir formaður, Haraldur Sigurðsson og Valur Oddsson.

Kjörskrá vegna Þjóðaratkvæðagreiðslu þann 6. mars 2010, liggur frammi almenningi til sýnis í þjónustuveri Mosfellsbæjar að Þverholti 2, á skrifstofutíma frá kl. 08:00 – 16:00, frá og með 26. mars 2010 og til kjördags.

Greidd verða atkvæði um lög nr. 1/2010 sem
Alþingi samþykkti 30. desember 2009 en forseti Íslands neitaði að staðfesta 5. janúar 2010. Lögin eru um heimild til handa fjármálaráðherra, fyrir hönd ríkissjóðs, til að ábyrgjast lán Tryggingarsjóðs innstæðueigenda og fjárfesta frá breska og hollenska ríkinu.  Lög nr. 1/2010 breyta lögum nr. 96/2009 um sama efni.  Lánin eiga að standa straum af greiðslum til innstæðueigenda í útibúum Landsbanka Íslands hf. í Bretlandi og Hollandi. Um þau hefur verið samið í svokölluðum Icesave-samningum.

Markmið atkvæðagreiðslunnar er að fá fram afstöðu þjóðarinnar til laga nr. 1/2010 eins og stjórnarskráin mælir fyrir um. Á kjörseðli verður spurt hvort lögin eigi að halda gildi eða falla úr gildi. Meirihluti atkvæða af landinu öllu ræður úrslitum og vægi atkvæða er jafnt. Ef meirihluti svarar játandi halda lögin gildi sínu. Ef meirihluti svarar neitandi falla lögin úr gildi.

Kosið verður í fimm kjördeildum og er skipað í þær eftir heimilisfangi kjósanda samkvæmt listanum hér að neðan:

Upplýsingar um kjördeildir í Lágafellsskóla vegna þjóðaratkvæðagreiðslu 6. mars 2010

Kjördeild 1 Kjördeild 2 Kjördeild 3  Kjördeild 4 Kjördeild 5
Erlend búseta lengur en 8 ár Bollatangi Hlaðhamrar Lynghólsvegur Svöluhöfði
Erlend búseta skemur en 8 ár Borgartangi Hlíðarás Litlikriki Tröllateigur
Óstaðsettir í hús Brattahlíð Hlíðartún Lækjartún Urðarholt
Aðaltún Brattholt Hraðastaðavegur Markholt Víðiteigur
Akurholt Brekkuland Hrafnshöfði Merkjateigur Þrastarhöfði
Álafossvegur Brekkutangi Hulduhlíð Miðholt Þverholt
Álmholt Brúnás Klapparhlíð Njarðarholt
Amsturdam Bugðufljót Krókabyggð Rauðamýri Húsheiti Mosfellsbær meginbyggð
Arkarholt Bugðutangi Kvíslartunga Reykjabyggð Húsheiti Mosfellsbær Mosfellsdalur
Arnarhöfði Bæjarás Lágamýri Reykjahvoll
Arnartangi Dalatangi Lágholt Reykjamelur
Ásholt Dvergholt Langitangi Reykjavegur
Ásland Dælustöðvarvegur Laxatunga Réttarhvoll
Asparlundur Egilsmói Leirutangi Rituhöfði
Asparteigur Einiteigur Leirvogstunga Roðamói
Barrholt Engjavegur Lerkibyggð Skálahlíð
Bergholt Fálkahöfði Lindarbyggð Skeljatangi
Bergrúnargata Fellsás
Skólabraut
Byggðarholt Furubyggð
Snæfríðargata
Birkiteigur Gerplustræti
Spóahöfði
Bjargartangi Grenibyggð
Stórikriki
Bjargslundur Grundartangi
Stóriteigur
Bjarkarholt Grænamýri
Súluhöfði
Bjartahlíð Hagaland


Blikahöfði Háholt



Hamarsteigur



Hamratangi



Hamratún



Helgadalsvegur



Helgaland



Hjallahlíð



Hjarðarland