Útboðsauglýsingar

ÚTBOÐ - HJÚKRUNARHEIMILI MOSFELLSBÆ Eir Útboð

Mosfellsbær, óskar eftir tilboðum í innanhússfrágang vegna byggingar á nýju hjúkrunarheimili að Hlaðhömrum í Mosfellsbæ. Verkið nær til að gera húsið fullfrágengið að innan.
Stærð hússins þegar það er fullbyggt er 2.268 m².

Helstu magntölur eru:
Gifsveggir
Dúklagnir
Loftstokkar
Lampar og ljós
Rafstrengir-taugar

Verkinu skal vera lokið eigi síðar en 15. febrúar 2013.

Útboðsgögn verða afhent rafrænt á verkefnavef verksins, lykilorð að útboðsgögnum veitir Karl Ásgrímur Ágústsson - karl@thg.is. Einnig er hægt að fá gögnin afhent á geisladisk frá kl. 10:00 mánudaginn 7. maí n.k. á bæjarskrifstofum Mosfellsbæjar.

Tilboð verða opnuð á bæjarskrifstofum Mosfellsbæjar, Kjarna Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ fimmtudaginn 31. maí nk. kl. 14:00 að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.

Sjá útboðsauglýsingu hér

____________________________________________________________________________________

Útboð - jarðvinnaVarmá

Mosfellsbær óskar eftir tilboðum í jarðvinnu vegna byggingu fimleikahúss við Íþróttamiðstöðina Varmá.
Verkið felur í sér jarðvinnu og fyllingu á svæðinu. Grunnflötur hússins er 1218 m2
Verkinu skal vera að fullu lokið 12. júní 2012.

Útboðsgögn verða afhend í Þjónustuveri Mosfellsbæjar 2. hæð Þverholti 2  frá og með 27. apríl 2012.

Tilboð skulu hafa borist til Eignasjóðs Mosfellsbæjar 2 hæð Þverholti 2  fyrir 11. maí 2012  kl:14:00. og verða tilboð opnuð á sama tíma að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.

Lesa má nánar um verkefnið hér

____________________________________________________________________________________

 

Mosfellsbær óskar eftir tilboðum í verkið: eldri_deild_Varmaskola_Klaedning_utveggja
Eldri deild Varmárskóla,

Klæðning útveggja.

Verkið felst í klæðningu eldri deildar Varmárskóla með stálklæðningu ásamt lagfæringum á steyptum stoðveggjum við skólann. Einnig á að yfirfara og lagfæra alla glugga á húsinu.

Verkinu skal lokið fyrir 15. júní 2012. 
(Ath. Það er búið að framlengja verktímann til 15. Júní en í auglýsingunni er talað um 1 maí 2012.)

Helstu magntölur eru:

Áfellur með gluggum 320 m
Vatnsbretti 240 m
Klæðning flata 470 m2
Endurnýjun glers 10 m2
Þéttingar milli timburs og steins 500 m
Málun karma og pósta 900 m
Nýmálun steyptra flata 25 m2

 

Geisladiskur sem inniheldur útboðsgögn verður afhentur í afgreiðslu Verkfræðistofunnar Eflu á Höfðabakka 9, 110 Reykjavík og í afgreiðslu bæjarskrifstofu Mosfellsbæjar í Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ frá og með þriðjudeginum 6. desember nk.,.

Tilboð verða opnuð á skrifstofu Mosfellsbæjar Þverholti 2, þriðjudaginn 20. desember 2011 kl. 14:00 að viðstöddum þeim bjóðendum er þess óska.

____________________________________________________________________________________

Stofnstígur meðfram VesturlandsvegiÚtboð stofnstígur Vesturlandsvegi
1. áfangi: Aðaltún - Hamrahlíð

Mosfellsbær óskar eftir tilboðum í gerð malbikaðs göngustígs meðfram Vesturlandsvegi.
Um er að ræða jarðvinnu, lagnavinnu, landmótun og yfirborðsfrágang.

Helstu magntölur:

Uppgröftur 2700 m3
Fyllingar 3400 m3
Fráveitulagnir   710 m
Hitaveitulagnir   230 m
Malbikun 3920 m2
Þökulagnir  330 m2
Grassáning 2800 m2
Trjáplöntur 1338 stk
Uppsetning ljósastólpa     31 stk

 

Áætluð verklok 1.maí 2012.

Útboðsgögn á geisladisk verða afhent í Þjónustuveri Mosfellsbæjar, Þverholti 2,2. hæð frá og með þriðjudeginum 18. október 2011.
Ennfremur er hægt að nálgast gögnin hér á vef Mosfellsbæjarmeð því að smella hér

Tilboðum skal skilað í Þjónustuver Mosfellsbæjar, Þverholti 2,2. hæð fyrir kl. 11:00 þriðjudaginn 1. nóvember 2011, þar sem þau verða opnuð í viðurvist þeirra bjóðenda sem þess óska.

Umhverfissvið Mosfellsbæjar