Íþróttamiðstöðin að Varmá
Íþróttamiðstöðin að Varmá er stærsta þjónustumiðstöð bæjarins þar
sem boðið er upp á öfluga frístundastarfssemi fyrir almenning og
íþróttafélög.
Á vegum Íþróttamiðstöðvarinnar að Varmá er fjölbreytt
starf unnið allan ársins hring.
Æfingaaðstaða er mjög góð og geta
hópar, starfsmannafélög og aðrir leigt tíma í
íþróttamiðstöðinni. Meðal þess sem er í boði er blak, badminton,
knattspyrna, tennis, karate, handbolti, fimleikar, taekwondo, golf,
sund og fleira.
Upplýsingar um starfssemi Íþróttamiðstöðvarinnar
að Varmá má fá í síma 566 6754. Íbúum Mosfellsbæjar er frjálst að æfa
t.d. skokk á frjálsíþróttavellinum án endurgjalds og er völlurinn opinn
á meðan íþróttamiðstöðin er opin en það er frá 06:30-23:00 virka daga
og frá 09:00-18:00 um helgar.
Íþróttamiðstöðin að Varmá er opin frá morgni til kvölds alla daga.
Sundlaugin að Varmá er hluti að starfssemi Íþróttamiðstöðvarinnar að Varmá.